Daginn. Ég biðst afsökunar á sambandsleysinu sem hefur verið hérna undanfarinn sólarhring. Það kom til vegna tilraunastarfsemi minnar með náttúruvæna orkugjafa, nánar tiltekið var ég að reyna að keyra serverinn minn á lífrænum úrgangi. Ég keypti nefnilega íbúðina á neðri hæðinni í síðasta mánuði og breytti henni í rotþró.
Það tók mig ekki nema tvær vikur að beina öllu skólpi blokkarinnar í nýju íbúðina mína og setja upp búnað til að framleiða lífræna olíu úr gumsinu, sem ég nota svo til að knýja díseltúrbínur í annarri íbúð við hliðina á - sem ég keypti líka. Og þetta virkaði bara afskaplega vel fyrstu vikuna. Að vísu fékk ég nokkrar vingjarnlegar kvartanir frá nágrönnum þegar brúnn massi byrjaði að leka meðfram hurðinni á rot-íbúðinni og fram á gang, en því var fljótreddað með góðu silikoni. En svo var það í gær að internettengingin mín stíflaðist þegar einhver vitleysingur sturtaði niður bleyju. Og þess vegna virkaði ekki síðan mín.
Þetta heitir að gera langa sögu stutta.
Hvað um það, í öðrum fréttum er ég búinn að vera með afbrigðum utan við mig undanfarið. Það að ég skuli enn vera á lífi eftir þessa törn skilst mér að megi flokka sem kraftaverk af þriðju gráðu skv. kaþólska kraftaverkastaðlinum ISO 4576. Ég virðist samt fara hratt batnandi, því samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup telja 78,3% kvenna undirt tvítugu á landsbyggðinni mig vera meira innan við mig í dag en í gær.
Nokkur dæmi úr daglega lífinu síðustu 24. klukkutíma:
Fór í gærkvöldi á Shellstöðina við Hagamel og fékk mér pylsu. Ekki í frásögur færandi, nema á leiðinni aftur út í bíl henti ég bíllyklunum í ruslið. Ég þurfti að fara aftur inn á stöðina og biðja fallega um að ruslatunnan yrði opnuð svo ég kæmist heim. Undirtektir starfsfólks og viðskiptavina voru... Glaðlegar.
Vaknaði í morgun. Skreið svefndrukkinn í sturtu, klæddi mig með erfiðismunum, fékk mér skyr (náði þó að gera þetta í réttri röð) og keyrði svo í vinnuna. Þegar ég var hálfnaður niðureftir fattaði ég að ég hafði gleymt tölvunni heima svo ég sneri við. Þegar ég kom aftur heim var hurðin á íbúðinni opin, það var kveikt á kerti á eldhúsborðinu (peran í eldhúsljósinu fór í gær) og tölvan mín lá á gólfinu við dyrnar.
Svo fór ég aftur niður í vinnu. Þar hóf ég vinnudaginn á að kalla Loga, vin minn og vinnufélaga til sjö ára, "Fjalar". Kannski eðlilegt eftir ekki lengri vinskap?
Um hádegið hringdi svo síminn hjá mér. Ég brást við með því að fálma í áttina að honum og svara hiklaust í banana sem ég hafði lagt á skrifborðið tveimur mínútum fyrr.
Svona er síðasti mánuður búinn að vera. Ég þarf að komast í frí áður en ég fer mér að voða.
Er ekki til námskeið fyrir svona fólk eins og okkur Hugi þar sem við getum lært að segja NEI og þekkja okkar takmörk þegar kemur að vinnuafsköstum? Bara svona að spöklera.
Magnaður mánuður ! :-o Þú verður bara að gera eins og Fry í "Three Hundred Big Boys" ( http://www.dailymotion.com/swf/51354Jtp2Hbvx2Uly ). Það myndi kosta minniháttar seinkun fyrsta daginn eða tvo, en svo tækist þér að ljúka verkefnum næstu mánaða á örskotsstund ;-)
Dóh... þá þurftu þeir endilega að vera búnir að fjarlægja þetta... Kíktu eftir Futurama, Season 4, þátturinn "Three hundred big boys".
Tjah, Linda - ég hef eiginlega meiri áhuga á að skipuleggja mig betur. Óþarfi að draga úr vinnu, svona í blóma lífsins! Góð hugmynd Þór. Þarf ekki að kíkja á myndbrotið, kann auðvitað Futurama utanað :-).
Iss, fáðu þér bara nýjan vin sem heitir Fjalar. Fyrst við erum annars að tala um Futurama þá held ég að Spice Weasel væri fullkomin jólagjöf handa Huga okkar :)
Ég á þegar afar góðan vin sem heitir Fjalar - og einn er meira en nóg. En Spice Weasel!? JÁ takk!! :-)
Knock it up another notch!
þú hefur greinilega átt stórleik undanfarið!
enn gerast stórmerkir atburðir á Hagamelnum, er hægt að hlaða farsíma með þessari nýju tækni? kannski þú finnir upp handhægan ferða-rotþróar-straumbreyti næst...
Hugi, þú þarft fyrst að hafa áhyggjur af því þegar þú svarar í banana og hann svarar á móti...
Kem með í frí. Langar í svoleiðis brjálæðislega mikið. Og þú mátt kalla mig Fjalar.
Hahhahahaha.....utan við þig....heldur betur...gleymdir alveg að setja inn skilaboðin inn sem þú sendir á mig í gær en átti víst að fara einhvert annað:) Hér koma þau... Hugi says: jájá, þú getur trútt um talað, bölvaður pervert og lúddíti sem þú ert Hugi says: emm, rangur gluggi - afsakið Ekki fara inn aftur...vertu bara fyrir utan...það er svo gaman að þér þannig hahahahha
Agnes þó! Að segja öllum svona hvað ég er utan við mig :-). Baun, ég skal lýsa tækninni betur fljótlega. Jafnvel teikna myndir. Carlo - ég hef lent í því :). Barbie, það er díll. Hvert eigum við að fara?
Fjalar? Barbie getur verið ákaflega afbrigðileg...
Susuususssusssusssusss! Er ferlega pen! Langar ferlega til Bora Bora og á Fáskrúðsfjörð. Hf á hvoruga staðina komið. Þú mátt bara ráða.
Tjáskiptaðu þínu eigin tjáskipti í tjáskiptin