Kæra dagbók.
Í dag fór ég til voða góðs læknis. Hann fór í gúmmíhanska og þreifaði á blöðruhálskirtlinum í mér.
Í kvöld ætla ég að fara einn í kalda sturtu, leggjast á sturtugólfið, sjúga á mér þumalinn og gráta aðeins. Það er stundum svo hreinsandi að gráta aðeins.
sonna sonna, þetta lagast Hugi minn.
Farinn niður á Stígamót. Bless í bili.
Æi, elsku kaddddlinnnn......
Já, búhú. Hvernig var annars í Kringlunni? Ha?
Takk Syngbjörg *sniff*. En þessi lífsreynsla gerði mig að betri manni. Læknirinn opnaði með fingrum sínum fyrir orð Guðs og í gærkvöldi talaði Hann í fyrsta skipti til mín gegnum blöðruhálskirtilinn. Núna heiti ég "Sjabúbú Almóðir" - og hefur aldrei leiðið betur.
Miss G - svona í í fúlustu, þá var svo gaman í Kringlunni að við nágranninn vorum hreinlega rekin út eftir lokun. (!) En Guð í Blöðruhálskirtlinum hefur sagt mér að Kringlan sé uppspretta alls ills - þar dýrkar fólk heiðingjaguðinn Útsöl.
I hear ya. Vonandi fékkstu þér eitthvað þröngt og stutt ;;)
Svo að læknirinn sé ekki einn um gamanið er <a href="http://www.lost.co.nz/main/library/spacemoose/strips/herpetic.png">best að gera svona</a>. Góða skemmtun.
Mikill er máttur lækna. Varstu kannski líka dáleiddur?
Fer ég rétt með að þú hafir borgað einhverjum fyrir að stinga höndinni á sér inn í pípulagnirnar á þér?
Við konurnar þurfum að þola álíka persónulega invasjón með reglulegu millibili- n.b. til að halda heilsu - og þá erum við að tala um óaðlaðandi fótstöðu með inngripi einhvers stál UFO-i sem rekið er upp í prívatið ásamt þukli á brjóstum og eyrnapinnapoti. Sorry, enginn vorkunn hér. Bíddu þar til þú fæðir börn kallinn!!
Já Hugi, bíddu bara, það á eftir að verða sársaukafyllra en þig órar fyrir...:-)
Hér er smá til að lina sársaukann: http://www.youtube.com/watch?v=jH8gtrD4_C4&feature=related
Miss G!? Þröngt og stutt? Þá... föt? *hóst* Syngibjörg, já, mikill er máttur lækna. Veit ekki með dáleiðsluna þó. Pedro, jújú, sekur. Hann fór þó ekki alveg með alla *höndina*. Til hvaða skaðræðislæknis ferð þú eiginlega!!? Og Linda - *ég* er að vorkenna mér hérna, vorkenndu þér í þínum eigin frítíma! Pedro - viltu vera guðfaðir fyrir litla kraftaverkið mitt? - fyrsta sveinfæðingin. Mjása, snilldarlag! En þýskan er alveg rosalega illa textuð.
Ananrs hef ég með aðstoð læknisfræðinnar náð að skilja blöðruhálskirtilinn mun betur. http://www.buyamag.com/prostate_vasectomy.php
Hugi þó!
Hugi, ættir nú að nota tækifærið til að vera opinn fyrir nýjum hugmyndum það er aldrei að vita hvaða dyr það mun opna fyrir þér.
Krissi, ákveðnir staðir á mínum líkama eru ekki opnir fyrir neinu. Ekki einu sinni hugmyndum.
Tjáskiptaðu þínu eigin tjáskipti í tjáskiptin