innilega til hamingju Hugi! samúðarkveðjur til kvenþjóðarinnar að missa af þessu öllu saman (sbr. síðustu færslu)
Já Baun, ég sem á svo mikið að gefa :-). Hehehe
Gæti líka verið "Horrendously extraverted repulsive rooster announcing homosexually using gardening instruments."
Hehe, held að það sé nær lagi.
Pff... þú kremur hjarta kvenþjóðarinnar í síðasta pistli og kemur með eitthvað svona núna.....
En hvenær á annars að kenna mér á appúll vesenið?
Heyrðu, Kiðhildur, afhverju ferðu ekki bara inn í Apple búð, labbar upp að myndarlegasta afgreiðslumanninum og biður hann um að kenna þér á iPoddinn þinn. Svo getur þú reynt að komast að því hvort hann er með hauskúputattú meðan hann er að en passaðu þig bara að missa ekki af lexíunni.
Nú er það á hreinu. Þú hlýtur að vera hommi Hugi. Enginn óhinseginn er svona akkúrat.
Wahahahahaha hvað í ósköpunum varstu búinn að reyna marga möguleika áður en þessi kom upp :-D Þú ert ekkert annað en snillingur, segi það og skrifa!
ooooo Kalli... ekki skemmileggja þetta fyrir mér Ekki nema þú viljir kenna mér á æPoddinn :O *glott*
hey mig vantar líka kennslu á I podinn minn :D hver og hver og vill og verður....verður að lofa.....má ekki svíkja :D
Hehe Harpa, þetta kom strax upp - að sjálfsögðu - hvernig gæti verið um annað að ræða :-). Og ég hef nú bara aldrei vitað aðra eins eftirspurn eftir iPod-námskeiðum. Veit Apple af þessu?
Linda, you got me there. Fabulous!
Ég held ég hafi einu sinni notað fullorðins iPod því ég á bara shuffle. Það gekk alveg slysalaust og ég kunni allt sem skipti máli á nokkrum mínútum... það var hins vegar erfiðara fyrir eigandann að krafsa hann aftur úr höndum mér.
ég er nú ekki einu sinni kominn með minn í hendurnar og ég held að hann verðir hreinlega allt of stór :/
Jemundur... það er ekki einu sinni byrjað að framleiða iPod sem dugar undir safnið mitt.
Ég var að heyra að það vantaði Ipod-kennara í allar tölvuverslanir. Kannski maður ætti að brjóta odd af oflæti sínu og fara að vinna fyrir almennilegan pening. Annars, ég hef aldrei séð Ipod, er þetta ekki bara eins og venjulegur MP3-spilari?
Skutla, ef ég ætti nú tíkall fyrir hvert skipti sem ég hef heyrt þetta. Kibba, sama hér. Er með stærstu græjuna og rúma þó aðeins úrval uppáhalds tónlistar á honum. Elías, ,jú, iPoddinn er eins og venjulegur MP3-spilari, en þó með skemmtilegasta viðmóti sem ég hef séð á slíkum.
Tjáskiptaðu þínu eigin tjáskipti í tjáskiptin