Frönsk kjötsúpa
Hugi Þórðarson sendi þessa uppskrift inn 11. nóvember 2006.
Innihald
- 400g nautakjöt, skorið í 1-3cm teninga
- 2msk matarolía
- 1 laukur
- 1 búnt steinselja
- 2msk tómatmauk
- 2dl rauðvín
- 8dl kjötsoð
- 2 gulrætur
- 4 meðalstórar kartöflur
- 1 blaðlaukur
- 100g sveppir
- 3 sneiðar beikon
- 1tsk timian
- salt og svartur pipar
- 2 lárviðarlauf
Aðferð
- Steikja laukinn í olíunni þar til hann er orðinn glær (ekki brúna hann)
- Brúna kjötið á heitri pönnu.
- Saxa steinseljuna, gulræturnar, púrruna og afhýddar kartöflurnar
- Blanda í öflugan pott öllu nema sveppunum
- Sjóða allt það heila í um eina klst., smakka til með salti og pipar (og jafnvel auka rauðvíni). Sveppina má setja út í þegar svona 20 mínútur eru eftir af suðutímanum.
Umsagnir
Engar umsagnir