Kjúklingarúllur með mangósölsu
Atli Páll Hafsteinsson sendi þessa uppskrift inn 27. mars 2009.
Pönnukökur með kjúklingi og mangó/paprikusölsu.
Uppskriftin er nóg fyrir 2-3
Innihald
- ** Kjúkklingur **
- 3 kjúkklingabringur (eða annar hluti af kjúkklingi)
- 1 msk nýpressaður appelsínusafi
- 1 msk nýpressaður limesafi
- 1/2 msk ferskur, saxaður kóríander
- 1/4 tsk chilliduft
- 1/4 tsk cayenne pipar
- 1/2 tsk sykur
- 1 msk olía
- Mexíkanskar pönnukökur (eða annað pönnukökulegt brauð)
- Sýrðurrjómi
- Salatblöð
-
- ** Mangósalsa **
- 1 mangó skorið i litla teninga
- 1/2 rauð paprika skorin í litla teninga
- 2 vorlaukar, smátt skornir
- 1/2 ferskur rauður pipar, saxaður (ég sleppti þessu þó)
- 15 gr saxaður, ferskur kóríander (eða bara þurkaður)
- 1 tsk lime börkur
- 1 msk lime safi
Aðferð
- Skerið kjúkklinginn og blandið saman við appelsínu- / limesafa, kóríander, chilliduft, cayenne pipar, sykur og olíu. Látið marinerast í smá stund.
- Blandið öllu salsa hráefninu saman.
- Steikið kjúklinginn á pönnu.
- Smyrjið pönnukökurnar með sýrðumrjóma, leggið salatblað ofan á og þar eftir kjúkkling og sölsu.
- Njótið!
Umsagnir
Atli Páll Hafsteinsson
2009-03-30T08:48:05
Hriklega ferskur og góður réttur, svo ekki sé minnst á einfaldur.