Rúgbrauð
Hugi Þórðarson sendi þessa uppskrift inn 2. desember 2006.
Innihald
- 2 bollar rúgmjöl
- 2 bollar hveiti
- 2 bollar heilhveiti
- 2 tsk. salt
- 2 tsk. matarsódi
- 4 tsk. lyftiduft
- 4 bollar súrmjólk
- 500g síróp
Aðferð
- Blandið öllum innihaldsefnum saman
- Smyrjið stóra Mackintosh-dós eða steikarpott. Fyllið til ca. hálfs með deigi
- Bakað í 4 tíma í lokuðu forminu, við 150°C
Umsagnir
Engar umsagnir