Þetta flaustur (fudge) er ljúffengt. Ef þú ert að flaustra í jólagjafirnar mæli ég með því að tvöfalda uppskriftina. Það tryggir að eitthvað verði eftir í pakkana.
Innihald
- 300g sykur
- 1,5 dl rjómi
- 50g smjör
- 200g sykurpúðar
- 200g 70% súkkulaði
- 100g suðusúkkulaði
- 100g saxaðar pecan-hnetur
- 2 tsk vanilludropar
- 1 tsk salt
Aðferð
- Settu smjörpappír í eldfast mót og smurðu hann með smjöri.
- Blandaðu sykrinum, rjómanum, smjörinu og saltinu saman í pott. Hitaðu þar til sykurinn er uppleystur og blandan fer að sjóða.
- Lækkaðu undir pottinum þegar suðan kemur upp. Bættu sykurpúðunum í pottinn. Hrærðu í pottinum þar til sykurpúðarnir eru bráðnaðir
- Láttu sjóða varlega á blöndunni í um 5 mínútur. Hrærðu allan tímann.
- Lækkaðu undir pottinum og bættu súkkulaðinu saman við. Hrærðu þar til það er allt bráðnað og vel blandað saman við.
- Að lokum hrærirðu pecan-hnetunum og vanilludropunum saman við.
- Helltu öllu gumsinu í eldfasta mótið.
- Flaustrið er um tvo klukkutíma að kólna í ísskáp. Þegar það er orðið stíft er hægt að hvolfa því úr mótinu og skera það í neysluvænar molastærðir. Njótið vel!
Hægt er að nota möndlur, valhnetur eða hvaða hnetur sem er í stað pecan-hnetanna. Notaðu flaustrmyndaflugið.
Það er líka gott fyrir núggatnagga að skipta 100g af 70% súkkulaðinu út fyrir 100g af mjúku núggati.