Hugi Þórðarson sendi þessa uppskrift inn 20. október 2010.
Innihald
300g soðið spaghetti
6 sneiðar beikon
1 laukur, fínt saxaður
1 hvítlauksrif, marið og saxað smátt
30g smjör
30g hveiti
400ml mjólk
250g Gouda-ostur
50g Parmesan-ostur
Salt
Pipar
Aðferð
Beikonið skorið í bita og steikt þar til það er orðið vel stökkt (ekki brenna það samt!). Tekið af pönnunni og mulið í mola
Laukurinn steiktur upp úr 1tsk af beikonfitunni þar til hann verður glær. Hvítlauknum bætt á pönnuna þegar ca. 1 mínúta er eftir, beikoninu blandað samanvið og blandan tekin til hliðar.
Smjörbolla bökuð úr smjörinu og hveitinu í potti og mjólkinni blandað útí til að gera jafning (varlega, svo jafningurinn kekkist ekki).
200g af gouda-ostinum blandað út í jafninginn og hrært þar til hann er bráðnaður. Beikon- og laukblöndunni blandað saman við og sósan krydduð m/s&p eftir smekk.
Setjið spaghettíið í eldfast mót. Hellið sósunni yfir og blandið vel. Dreifið restina af gouda-ostinum og parmesan yfir.
Bakið í ofni við 180°C þar til osturinn er fallega brúnn.
Umsagnir
Hugi Þórðarson 2010-11-27T13:40:56
Snilldarmáltíð á köldum vetrarkvöldum.