Kjúklingur í freyðivínssósu
Hildur Þórðardóttir sendi þessa uppskrift inn 13. mars 2010.
Innihald
- 180 gr. hrísgrjón
- 4 kjúklingabringur, skornar í tvennt (með eða án húðar, betra með!)
- 50 gr. hveiti
- salt
- pipar
- 50 gr. smjör
- 1 laukur, skorinn í fernt
- 1 gulrót, skorin í fernt
- 1 lárviðarlauf
- 1/4 tsk. engifer
- 1 bolli freyðivín (má vera óáfengt)
- 100 gr. hreinn rjómaostur
- 1-2 dl. rjómi
- 250 gr. græn vínber
Aðferð
- Sjóðið grjónin og haldið heitum
- Blandið hveiti, salt og pipar saman í lítinn poka, setjið bringurnar í og hristið vel saman
- Steikið bitana upp úr smjöri
- Bætið lauk, gulrót, lárviðarlaufi, engifer og freyðivíni út í og látið þetta malla í um 25 mín.
- Setjið hrísgrjónin á fat og raðið kjúklingnum yfir
- Sigtið sósuna, bætið rjómanum og rjómaostinum saman við og hrærið í þar til hann er bráðinn
- Setjið vínberin út í
- Hellið hluta af sósunni yfir kjúklinginn og berið afganginn fram í skál
Umsagnir
Engar umsagnir